ALLT VERÐUR LJÚFUR LEIKUR

Þú ert ljós, sem lýsir vegi mína.
Þú ert lífið allt í brjósti mér.
Ef ég sé þig, sólin fer að skína,
sæl ég halla mér að barmi þér.

Allt þá verður ljúfur leikur,
langir dagar verða skammir okkur hjá,
því við dönsum léttfætt gegnum lífið
loks þótt hárin verði grá.

Þegar árin yfir okkur færast,
alltaf styðjum hvort annað, þú og ég.
Og við arineldinn minn, skal þér ylja enn um sinn
eins þótt fenni í farin spor.

Ef þú veist um höfund lags sendu gjarnan línu
Texti: Jón Sigurðsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.