ALLTAF Á HEIMAEY

Er sumarið mig vængjum sínum vefur
vaknar gömul þrá í brjósti mér.
Eyjan mín sem allt mér gefið hefur
óðara þá til þín strax ég fer.

Ævintýrin engan taka enda
alltaf þegar hittumst við á ný
hér ævintýrum ljúft er í að lenda
og liggja þínum mjúka faðmi í.

Þegar logarni dansandi lýsa upp tjöld
hljóma lögin sem kunnum við flest.
Þá í hjartanu veit ég að öld eftir öld
verður alltaf á Heimaey best.

Í dalnum sem var eitt sinn ofurseldur
ösku,fyrir áratugum tveim
logar bál og heitur ástar eldur
allra sem hér komnir eru heim.

Njótum þess að sitja aftur saman
sameinuð í okkar fagra dal.
Nú skal verða glatt á hjalla og gaman
því gleðin hér í dalnum ríkja skal

Flytjandi: Hálft í hvoru
Lag: Gísli Helgason og Eyjólfur Kristjánsson
Texti: Ingi Gunnar



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.