ANNAÐ KVÖLD

Ég er að halda heim á leið annað kvöld.
Þar sem nornir gera ástarseyð annað kvöld.
Mig leiðir þrá sem ég leyna ei má,
annað kvöld
annað kvöld.

Um ástina ég syng þó kalt sé í kring.
Öll mín von er við þig bundin, viltu skilja?
Það er og verður óskastundin elsku Lilja.
Annað kvöld.

Ekkert læt ég aftra mér annað kvöld.
Þá verð ég loksins einn með þér annað kvöld.
Ó, Lilja mín, senn kem ég til þín,
annað kvöld
annað kvöld.

Nú legg ég strax af stað og staðreynd er það.
Þú bíður mín þar, alein, út við bláu sundin,
og seyðir mig og leiðir - það er óskastundin,
annað kvöld.

Annað kvöld
annað kvöld.
Við aldrei skulum skilja eftir það kvöld.
Annað kvöld.

Ef þú veist um höfund lags sendu gjarnan línu
Texti: Rósberg G.Snædal



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.