AUGUN ÞÍN

Augun þín,
fá dimmu' í dagsljós breytt.
Augun þín,
fá sorgarskýjum eytt.
Ljómi þau,
er allt svo undur bjart
að ég því trúi vart
að mér þau segi satt.
Þó eru' augun þín svo full af tærri tryggð
og tállaus yfirskyggð af ást.
Augun þín, þau birta eitt og allt,
segja þúsundfalt
að þú sért ástin mín.

Burt rekur þú frá mér sérhverja sorg.
Syng ég því glaðvær um stræti og torg.
Vegsama allt, sem þau tjá og ég á
geymt í hjarta mínu.

Augun þín,
fá dimmu' í dagsljós breytt.
Augun þín,
fá sorgarskýjum eytt.
Ljómi þau,
er allt svo undur bjart
að ég því trúi vart
að mér þau segi satt.
Þó eru' augun þín svo full af tærri tryggð
og tállaus yfirskyggð af ást.
Augun þín, þau birta eitt og allt,
segja þúsundfalt
að þú sért ástin mín.

Lag: V.Cosma, N.Gimbel
Texti: Sigurður Helgi Guðmundsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.