AUMINGJA SIGGI

Siggi var smeykur er sótti hann kýrnar,
suður hjá tungu þær voru á beit.
Svitnaði´ af ótta um ennið og brýrnar,
er ólukku bolann í Tungu hann leit.

:,: Bö, bö, bö, segir bolinn í Tungu :,:
Að mæta því óféti´ er ei fyrir gungu,
aumingja Siggi fór grátandi heim.

Pabbi hann sendi hann Sigga´ út að Bakka,
Siggi svo glaður í hjartanu varð.
Heim undir túnið er var hann að vakka,
Vaskur kom hlaupandi út fyrir garð.

:,: Voff, voff, voff, segir Vaskur á Bakka :,:
Honum er illa við ókunna krakka,
en aumingja Siggi fór grátandi heim.

Dag einn var Siggi að dunda við ána,
dálítinn tíma í næði og ró.
Með ofsa og bræði í koll þessum kjána,
krían úr hólmanum vængjunum sló.

:,: Krí, krí, krí, segir krían við ána :,:
Siggi af ótta var allur að blána
og aumingja snáðinn fór grátandi heim.

Loks komst hann Siggi í kynni við krumma,
kjáninn upp gilið að hreiðrinu smaug.
Á koll hans féll glóðvolg og leiðinleg lumma,
um leið og hann krummi af hreiðrinu flaug.

:,: Krunk, krunk, krá, segir krumminn við gilið :,:
Honum fannst eflaust hann ætti það skilið,
en aumingja Siggi fór grátandi heim.

Lag: Ef þú veist um höfund lags sendu gjarnan línu
Texti: Ef þú veist um höfund texta sendu gjarnan línu



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.