Á KRÁNNI

"Ó, pabbi minn kæri, æ komdu með mér heim,
sko, klukkan er senn orðin eitt.
Þú lofaðir í morgun að koma snemma í kveld,
á kránni að tefja´ ekki neitt.
Nú eldurinn er dauður og allt er orðið kalt
og enn bíður mamma´ eftir þér,
hún situr með hann Villa litla, sjúkur hann er
og sáralítil hjálp er í mér"

Kom heim, kom heim,
æ, pabbi minn kæri, kom heim.

"Ó, pabbi minn kæri, æ komdu með mér heim,
sko, klukkan slær tvö fylgdu mér,
það kólnar og hann Villi litli´ er veikari´ en fyrr
hann var þó að spyrja´ eftir þér
Og segir það hún mamma mín, ef þyngi honum enn,
að þá muni´ hann deyja í nótt
og þessar fréttir bað hún mig að bera til þín;
æ, blessaður komdu nú fljótt".

Kom heim, kom heim,
æ, pabbi minn kæri, kom heim.

"Ó, pabbi minn kæri, æ komdu með mér heim,
sko, klukkan er senn orðin þrjú.
Og tíminn er svo langur og tómlegt heima er,
við tvær erum aleinar nú.
Því Villi litli´ er dáinn; já, drottinn minn hann tók
og deyjandi spurði´ hann um þig;
hann kallaði´ á þig pabbi minn og bauð þér góða nótt
og bað þig að kyssa sig.

Kom heim, kom heim,
æ, pabbi minn kæri, kom heim.

Lag: Ólafur Þórarinsson
Texti: Sigurður Jóhannesson


Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.