ÁLFADANS

GNú er glatt í Chverjum Ghól,
Dhátt nú Aallir kveðDi,
Ghinstu nótt um Cheilög jól,
D7höldum álfagleðGi.

GFagurt er rökkrið við Cramman D7vætta Gsöng,
D7syngjum dátt og dönsum því A7nóttin er svo Dlöng.
GSyngjum dátt og Cdönsum því Gnóttirn D7er svo Glöng.

Kátir ljúflings kveðum lag,
kveðum Draumbót snjalla,
kveðum glaðir Gýgjarslag,
glatt er nú á hjalla.

Fagurt er rökkrið…..

Veit ég Faldafeykir er
fáránlegur slagur,
og hann þreyta ætlum vér,
áður en rennur dagur.

Fagurt er rökkrið…..

Síðast reynum Rammaslag,
- rökkva látum betur,
það hið feiknum fyllta lag,
fjörgað dansinn getur.

Fagurt er rökkrið…..

Fyrst skal leika lögin mild,
léttan kveðum slaginn;
en í lögin töfrum trylld
treystim undir daginn.

Fagurt er rökkrið…..

Þá skulu vakna undur öll,
allir kraftar hrærast;
fram úr hömrum ferleg tröll
flykkjast þá og ærast.

Fagurt er rökkrið…..

Öllum býsnum braut sé rudd,
bifist hallir álfa;
þá skal foldin steini studd
stynja, nötra, skjálfa.

Fagurt er rökkrið…..

Vex þá fjör um fold og sæ,
fjötrar allir slitna;
þá skal vakna bóndi á bæ,
blóð í æðum hitna.

Fagurt er rökkrið…..

Áfram sérhvert undralag
efli hver, sem getur.
Síðast reynum Rammaslag,
- rökkva látum betur.

Fagurt er rökkrið…..

Lag:         Helgi Helgason
Texti:       Sæmundur Eyjólfsson


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.