ÁLFAR OG TRÖLL

Ævintýrin öll
eftir okkur bíða - ójá.
Traust og göfug tröll
tilveruna prýða.
Vitum líka að álfurinn sem ævintýrið á
unir glaður sér, eldinum hjá.

Þegar skátatjöldin rísa, þegar kinnar strýkur blær,
þegar varðeldurinn gefur afl og yl.
Þegar gleðin tekur völdin, þegar skáti gítar slær,
þá er yndislega gott að vera til.

Álfar og tröll,
orðin þessi seiða - ójá.
Fagna okkur fjöll
faðminn sinn út breiða.
Þangað liggja spor, frískleg bæði fyrr og nú,
fetum okkar leiðir ég og þú.

Þegar skátatjöldin rísa, þegar kinnar strýkur blær,
þegar varðeldurinn gefur afl og yl.
Þegar gleðin tekur völdin, þegar skáti gítar slær,
þá er yndislega gott að vera til.

Lag: John Rostill
Texti: Hörður Zóphaníasson


Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.