BESTI VINUR

D7Þetta er besta skinn,
besti vinur þinn.
Tekur hlýlega í hönd
og kyssir þig á kinn.
Og þú G7stendur stjarfur,
þú skilur ekki neitt
því hann D7frystir þig með brosi
sem hann fékk hjá Colgate.

A7Því þú skalt telja fingurna, 1.2.3.
Þessi G7úlfabros
geta verið svo dýr.

Hann selur fífil og fjall
fyrir fimmþúsundkall
því hann er viðskiptajöfur,
hann er geysilega snjall.
Já, hann er gefinn fyrir grín,
sérðu bara hvernig hann hlær
þegar hann rukkar þig um milljón
þótt hann skuldi þér tvær.

Því skaltu telja fingurna, 1.2.3.
Þessi íslenska fyndni
getur verið svo dýr.

Já, hann ruggar og rær
og telur á sér tær,
segist breyttur maður,
öðruvísi en í gær.
Snúum bökum saman,
fyrirheitin eru góð.
Ég segi varaðu þig, varaðu þig
hann þyrstir í blóð.

Og þú skalt A7telja fingurna, 1.2.3.
Þessi G7viðskiptajöfur
hann er ekki nógu skýr,
D7hann er einhverskonar dýr.

Teldu fingurna, 1.2.3.
Þessi úlfaldabros geta
verið svo dýr. D7

A7Teldu fingurna, það vantar alla fimm.
Þessi G7viðskiptaveröld
er alltof grimm. D7

Lag:         KK
Texti:       KK


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.