BÍDDU PABBI

Í hinsta sinn að heiman lágu spor mín
Því ég hamingjuna fann ei lengur þar
Og hratt ég gekk í fyrstu uns ég heyrði fótartak,
Og háum rómi kallað til mín var.

Kallað: "Bíddu pabbi, bíddu mín
bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt
að ég hrasaði og datt
Bíddu pabbi, bíddu mín"

Ég staðar nam og starði á dóttur mína
er þar stautaði til mín svo hýr á brá,
og mig skorti kjark að segja henni að bíllinn biði mín
að bera mig um langveg henni frá.

Hún sagði: "Bíddu pabbi, bíddu mín
bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt
að ég hrasaði og datt
Bíddu pabbi, bíddu mín"

Ráðvilltur ég stóð um stund og þagði,
en af stað svo lagði aftur heim á leið.
Ég vissi að litla dóttir mín, hún myndi hjálpa mér
að mæta vanda þeim sem heima beið.

Hún sagði: "Bíddu pabbi, bíddu mín
bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt
að ég hrasaði og datt
Bíddu pabbi, bíddu mín"

Flytjandi: Vilhjálmur Vilhjálmsson
Lag: Peter Callander & Geoff Stevens
Texti: Iðunn Steinsdóttir



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.