BÍÓLAGIÐ

Svarti Pétur ruddist inn í bankann
með byssuhólk í hvorri hönd.
Heimtaði með þjósti peningana
og bankastjórann hneppti í bönd.

Upp með hendur, niður með brækur
peningana, ellegar ég slæ þig í rot.
Haltu kjafti, snúðu skafti.
Aurinn eins og skot.

Svarti Pétur brölti upp á jálkinn
og þeysti burt með digran sjóð.
Þeir eltu hann á átta hófa hreinum
auk Nonna, sem rakti slóð.

Upp með hendur ...

Hesma þúsma mesma vosma kasma isma.
Hesma þúsma mesma vosma já.

Þeir náðu honum nálægt Húsafelli
og hengd'ann upp í næsta tré.
Réttlætið það sigraði að lokum
og bankinn endurheimti féð.

Upp með hendur ...

Hesma þúsma mesma vosma kasma isma.
Hesma þúsma mesma vosma já.
Hesma þúsma mesma vosma kasma isma.
Hesma þúsma mesma.

Flytjandi: Stuðmenn
Lag: Stuðmenn



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.