BLÚS Í G

Mánudagsmorgun á fætur ég fer.
Höfuðið á mér er þunnt eins og gler.
Ég þrái að fá þig , sjá þig
sofa heila nótt hjá þér.

Hvað á ég að gera, hvar verð ég að vera.
Í ókunnri borg , svo fjarri þér.
Ég þrái að sjá þig , fá þig.
Hvíla eina nótt hjá þér.

Tungan í góminn er eins og gróin.
Gerbragð í munni af öldrykkju er.
Ég þrái að fá þig sjá þig.
Sofa eina nótt hjá þér.

Ég horfi út um dyrnar, geng út um gluggann.
Geri allt vitlaust hvar sem ég fer.
Ég þrái að fá þig, sjá þig.
Hvíla eina nótt hjá þér.

Í hyllingu heyr' ég þig syngjandi sálma.
Svona ertu heilög í augum á mér.
Ég þrái að fá þig , sjá þig.
Sofa heila nótt hjá þér.

Lag: Magnús Eiríksson
Texti: Magnús Eiríksson
Flytjandi: Mannakorn



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.