DAGUR OG NÓTT Í DALNUM

Ljómar sumarsól
á sæinn björt og heit,
vermir byggð og ból
og blessar þennan reit.
Kveða ljúflingslag
öll loftsins börnin fríð,
þennan dýrðardag
vér dáum alla tíð.

Og seinna, þegar dagsins birta dvín
um dalinn allan ljósadýrðin skín.

Eins og álfahöll
við ævintýrasæ
með furðulegum blæ.
Glöð við strengjaslátt
um stjörnubjarta nótt
söng vorn hefjum hátt.
Vor hátíð endar skjótt.

Lag: Guðjón Weihe
Texti: Sigurjón Ingólfsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.