DOLORES

Eitt sumarkvöld í Spánarferð
langt fjarri allri túristamergð
ég átti mína fyllstu óskastund.

Ég sat aleinn með eðalvín
er senjóríta sveif inn til mín.
Hún minnti’ á Mónu Lísu – heit í lund.

Hún sagðist heita Dolores;
stórglæsileg og sæt – há til hnés
og næturlangt við áttum ástarfund.

Svo kom að því að ég fór heim.
Þá kyssti’ hún mig með áfengum keim
og hljóp svo burt og hvarf í mannfjöldann.

Eiit sumarkvöld í Spánarför
var nóttin dimm og ástin ör.
Ég þekkti’ ei lengur mig sem sama mann.

Lag: Robbie van Leeuwen
Texti: Þorsteinn Eggertsson


Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.