DRAUMBLÓM ÞJÓÐHÁTÍÐARNÆTUR

Ég bíð þér að ganga í drauminn minn
og dansa með mér í nótt
um undraheima í hamrasal
og hamingjan vaggar þér ótt.
Nætur og dagar líða þar
við lokkandi söngva klið
frá fólki við bjargið og fuglum við brún
og fagnandi hafsins nið.

Þar líða saman
og læðast svo rótt
ljóð ungrar ástar
og hlusta á ævintýr hvísla hljótt.

Ég elska spor þín og lífsbros þitt
sem leikur við mína þrá
eins eldurinn glettist frjáls við glóð
og flöktir við himintjöld blá.
Og þegar staldrar nótt við dag
stöndum við sæl og ein,
þá sigla um náttlaus veraldar haf
vonin og ást okkar hrein.

Þannig slá hjörtun
sinn hamingjudraum
og hamrabörn ung
heilsa framtíðarinnar ljúfa draum.

Og þó að þú vaknir við draumsins brá
og viljir dansa á ný
þá hlustaðu aðeins á ljóðsins óm
sem lifir hug þínum í.
þá veröldin roðnar við augnalot þín
og andar með vorsins hljóm,
því allt sem hún þráði var þróttur þinn og
þeyrinn við draumsins blóm.

Lag: Þorgeir Guðmundsson
Texti: Árni Johnsen



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.