EF GANGAN ER ERFIÐ

Ef gangan er erfið og leiðin er löng,
vér léttum oss sporið með þessum söng.
Ef þung reynist byrðin og brekkan er há,
brosum, brosum krakkar þá.

Þótt bylji hríð og blási kalt,
brosið er sólskyn sem vermir allt,
og bræðir úr hugskoti böldsýnis ís,
brosum, þá er sigur vís.

Og enginn er verri þó vökni í gegn
og vitaskuld fáum við steypiregn.
En látum ei armæðu á okkur fá,
brosum, -brosum krakkar þá.

Þótt bylji hríð og blási kalt,
brosið er sólskyn sem vermir allt,
og bræðir úr hugskoti böldsýnis ís,
brosum, þá er sigur vís.

Ef þú veist um höfund lags sendu gjarnan línu
Texti: Ragnar H. Harðarson


Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.