EF VÆRI ÉG SÖNGVARI

Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð
um sólina vorið og land mitt og þjóð.

En mömmu ég gæfi mín ljúfustu ljóð,
hún leiðir mig verndar og er mér svo góð.

Ef gæti ég farið sem fiskur um haf
ég fengi mér dýrustu perlur og raf.

Og rafið ég geymdi og gæfi'ekki braut
en gerði' henni mömmu úr perlunum skraut.

Ef kynni' ég að sauma ég keypti mér lín
og klæði ég gerði mér snotur og fín.

En mömmu úr silki ég saumaði margt
úr silfri og gulli, hið dýrasta skart.

Texti: Páll J. Árdal



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.