EITT SINN

Eitt sinn, fyrir langa löngu,
lékstu fyrir mig eiturslöngu,
sýndir mér flugur og fiðrildi,
fegurð sem ég hvorki vildi né skildi.
Kóngulær á loðnum löppum
læðast í draumum hjá ungum köppum.
Við sögum þínum mér hugur hraus.
Hamingjan er ekki endalaus.

Þú djöflaðist og dansaðir.
Ég dæsti og þú ansaðir:
„Hvað skelfir þig svona, manni minn?
Mestanpart er þetta alltaf hugurinn.“
Þú lést mig sigra þig í sjómanni
með sæmd, enda besti vinur minn og góður nágranni

Sólargeislar læddust eftir langri götunni,
lúmskir einsog hesturinn, sem stal úr mjólkurfötunni
Hálfkassabíll í fjarlægð er hluti af óvæntu atvikinu
svo algjörlega hljóðlaus hann virtist svífa á rykinu.
Þegar mjaltakonan ástfangna snökti yfir fáránlegri frétt
sem fyrir hádegi reyndist vera í öllu sönn og rétt;
að kærastinn hennar og besti vinur minn, já, þú, bóndi á næsta bæ,
hafðir bundið enda á líf þitt þennan skrýtna morgun í maí.

Og ég horfði bara uppí himininn.
Hugsaði um besta vininn minn.
Mér fundust beljurnar, æðrulausar, mig spyrja með eyrun sperrt,
spekingslegar og jórtrandi; Hvað heldurðu að þú sért?

Eitt sinn fyrir langa löngu
lékstu fyrir mig eiturslöngu, sýndir mér flugur og fiðrildi,
fegurð sem ég hvorki vildi þá né skildi.

Lag: Hörður Torfa
Texti: Hörður Torfa


Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.