EITTHVAÐ GAMALT OG GOTT

Við félagarnir forum oft á sveitaböll,
náum þar í dúfur og fáum drátt.
Þetta eru oftast mikil fylliskröll,
við syngjum alltaf með og dönsum dátt.

Eini gallinn yfirleitt er hljómsveitin,
hún spilar skrýtin lög og hefur hátt.
En ég þekki alla þessa karla út og inn,
svo ég æði upp og bið þá opinskátt.

Gætum við fengið að heyra eitthvað íslenskt,
Eitthvað gamalt og gott.
Gætum við fengið að heyra eitthvað íslenskt,
eitthvað gamalt og gott.

Framúrstefnutextana og útlensku,
höfum við sko ekk´í okkar sveit.
Áður fyrr við höfðum eina harmonikku,
og hvursu gaman var þá hver einn veit.

Gætum við fengið að heyra…

Já enginn spilar lengur ræl og sjarleston,
og ekki kemst maður lengur í góðan kokk.
Já mætti ég kanski biðja um Þorstein Guðmundsson,
og Gissur Geirs, þeir spila fleir´en rokk.

Gætum við fengið að heyra…

Ef þú veist um höfund lags sendu gjarnan línu
Ef þú veist um höfund texta sendu gjarnan línu


Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.