EYJASYRPA

Fegurð friðsæld og kyrrð
finnst hvergi meiri en í Eyjanna byggð.
Sumrin sífellt svo björt
síðkvöldin fögur er húmar að ört.
Herjólfsdalur og Há.
Helgafellið glampar á, er sólin skín
sólarlagið er dásamleg sýn, allt brosir til þín.

Urðum útsýn ber af
eygjum í sveitirnar handan við haf.
Skansinn. innsiglingin
:,:sigla inn skipin oft drekkhlaðin:,:

Stæltur stoltur sig ver
Stórhöfði stendur öll veður af sér.
Lýsir veginn vitinn
og veðrið tekur vitavörðurinn.
Brimurð og Blátindur
Breiðabakka leikur um vindur, næðir um naust
um náttúruna sauðfé gengur laust, langt fram á haust.

Heimaklettur hátt
hreykir sér yfir og sýnir sinn mátt.
Klifið klífur þú létt
:,:Klaufina sækir og tekur sundsprett:,:

Lokka, laða úteyjar
liggja við sumarlangt lundakarlar.
Hani, Hæna, Álfsey,
Hellisey, Suðurey, Elliðaey.
Surtsey reis upp úr sæ
Sérkennilegan setur á blæ,stolt okkar er
undur jarðar fyrir augu okkar ber,úr fjarska hver sér.

Friðar og fagnaðarsöng
fuglarnir syngja oftast dægrin löng.
Alltaf gætir unaðar
:,:ekkert er fegurra en Vestmannaeyjar:,:

Lag: Þorgeir Guðmundsson
Texti: Sigurbjörg Axelsdóttir



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.