ÉG ER KOKKUR Á KÚTTER FRÁ SANDI

Ég er Fkokkur á Fdimkútter frá Gm7Sandi. C7
Ég fæ Gm7kjaftshögg hvern C7einasta Fdag.
Og ekki líður mér Fdimbetur í Amlandi, A7
ef ég Dm7lendi við G7konuna í Gm7slag. C7
Hún er Ftvígild að Fdimafli hún Gm7Tóta C7
og ég Gm7tala' ekki C7um sé hún Freið,
enda Cm7tek ég þá D7fljótast til G7fóta,
því Gm7flótti' er sú C7einasta Fleið.

Ég var var ungur er Tóta mig tældi,
okkar trúlofun samstundis birt.
Og í hjónaband þvínæst mér þvældi,
það var óveðursblandið og stirt.
Því þegar frá leið hljóp fjandinn í svínið,
og fædd voru ellefu börn,
þá var búið með gaman og grínið,
þá var grátur mín síðasta vörn.

Því á kvöldin er kjaftshöggin dundu,
svo í kjammana báða mig sveið
og tárin af hvörmum mér hrundu
þegar hræddur undir rúmið ég skreið.
Já, þá skemmti hún sér skjátan sú arna
er hún skammirnar dynja á mér lét,
meðan ég hímdi hundflatur þarna
og hreyfði mig ekki um fet.

En á kútternum allir sig krossa
ef ég kem fram með viðbrenndan graut
og skipstjórans brástjörnur blossa
meðan bölvar rétt eins og naut.
Og ef kjötsúpan virðist með kekkjum,
eða kjötbollan reynist of hrá,
þeir kenna slíkt helvískum hrekkjum,
svo hefst skemmtunin vöngum mér á.

Ef ég lifað fæ lengur en Tóta,
er hún leggur á eilífðarbraut,
skal ég dansa og daganna njóta
og elda dýrindis rúsínugraut.
En mig hryllir, ef hittumst við aftur,
er ég héðan af jörðinni fer,
nema einhver mér ókunnur kraftur
komi óðar og liðsinni mér.

Lag:           Ólafur Gaukur
Texti:         Örnólfur í Vík


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.