ÉG ER SJÓARI
Ég er sjóari og sigli um haf,
sem sorg og gleði mér gaf
og ég kyssi konurnar meðan flýtur mitt fley.
Út um allan heim á ég helling af þeim
og ég er og verða mun sjóari þar til ég dey.
Ég hef þrælað, aflað og eytt,
elskað, drukkið og veitt,
frá blautu barnsbeini á döllum af margs konar gerð
og ég fer ekki í land nema fleytan sé strand,
og ég held áfram að sigla uns kemur mín síðasta
ferð.