FRELSI ÉG FINN

Lengst inn í dal,
djúpum dal inn í háum himinsal
frelsi ég finn
er ég ríð mína leið,
yfir Hreppa, Holt og Skeið
frelsi ég finn.

     Ef ég ein fæ að dvelja í aftanblænum
     og una mér við fuglasöng í lundi grænum
     þó ég aftur verði að fara vinna í bænum
     frelsi ég finn.

Alfrjáls og frí ég hef það best
með hnakk og hest
og hott og hí og hvergi ský.
Við Heklutind klárinn minn
með fjörtök stinn
og sunnan vindur kyssir kinn.

     Ég ætla að ríða í austur til Eyjafjalla
     því undurbjart er tunglskinið á jökulskalla
     leysist sérhver vandi og allir fjötrar falla
     frelsi ég finn,
     já, frelsi ég finn.

Lag:         Cole Porter
Texti:       Ragnheiður Á. Pétursdóttir


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.