FRJÁLS

Lítil stúlka lognar blóm
litar hugan með skærum hljóm
niðurdregin marin blá.

Harður faðir hugsar sér
hatar allt og alla ber
kúguð stúlka ekkert má.

Hleypur fljótt um miðja nótt
læðist allt er kyrrt og hljótt
strýkur öllu þessu frá.

:,: Já ég bið þig nú, förum saman tvö
verum frjáls, gerum það sem að ekki má
lifum lífinu lifandi :,:

Lyftir hún í loftið fer
lokar ekki á eftir sér
hurðin skellur henni frá.

Hvar er friður, hvar er sátt
hún hefur öðlast nýjan mátt
nýjan heim sem allir þrá.

Hleypur fljótt um miðja nótt
læðist allt er kyrrt og hljótt
strýkur öllu þessu frá.

:,: Já ég bið þig nú, förum saman tvö
verum frjáls, gerum það sem að ekki má
lifum lífinu lifandi :,:


Flytjandi: Vinir vors og blóma



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.