FYRIR SUNNAN FRÍKIRKJUNA

AmEnnþá brennur mér í muna,
meir en nokkurn skyldi Egruna
að þú gafst mér undir fótinn.
Fyrir sunnan FríkirkjE7una
Amfórum Dmvið á EstefnuAmmótin.

Dm Am E7 Am Dm Am E7 Am

En ég var bara eins og gengur,
ástfanginn og saklaus drengur.
Með söknuði ég seinna fann að
við hefðum getað vakað lengur
og verið betri hvort við annað.

Svo var það fyrir átta árum,
að ég kvaddi þig með tárum.
Daginn sem þú sigldir héðan.
Harmahljóð úr hafsins bárum
hjarta mínu filgdi' á meðan.

En hver veit nema ljósir lokkar
lítill kjóll og stuttir sokkar
hittist fyrir hinum megin?
Þá getum við í gleði okkar
gengið suður Laufásveginn.

Lag:         J.V. Hafstein og Einar E. Markan
Texti:       Tómas Guðmundsson


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.