GUÐ GAF MÉR EYRA

Guð gaf mér eyra, svo nú má ég heyra,
:,:Guð gaf mér augu, svo nú má ég sjá.:,:
Guð gaf mér hendur, svo gjört gæti meira,
Guð gaf mér fætur, sem nú stend ég á.
Guð gaf mér eyra, svo nú má ég heyra,
Guð gaf mér augu, svo nú má ég sjá.

Guð gaf mér höfuð, sem hugsar og dreymir,
:,:hátt sem að lyftist að vísdómsins lind.:,:
Guð gaf mér hjarta, já, hjarta, sem geymir
hreina og geislandi frelsarans mynd.
Guð gaf mér höfuð, sem hugsar og dreymir,
hátt sem að lyftist að vísdómsins lind.

Höf. ókunnur.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.