GUTTAKVÆÐI/VÍSUR

Sögu vil ég segja stutta
sem að ég hef nýskeð frétt.
Reyndar þekkið þið hann Gutta
það er alveg rétt.

Óþekkur er ætíð anginn sá,
út á götur stekkur hann
og hoppar til og frá.
Mömmu sinni unir aldrei hjá
eða gegnir pabba sínum
nei, nei, það er frá

Allan daginn út um bæinn
einatt heyrast köll í þeim
"Gutti, Gutti, Gutti, Gutti,
Gutti, komdu heim".

Andlitið er á stutta
oft sem rennblautt moldarflag.
Mædd er orði mamma hans Gutta,
mælir oft á dag:

"Hvað varst þú að gera Gutti minn
geturðu ekki skammast þín
að koma svona inn?
Réttast væri að fleingja ræfilinn
Reifstu svona buxurnar
og nýja jakkann þinn?

Þú skalt ekki þræta Gutti,
það er ekki nokkur vörn.
Almáttugur, en sú mæða
að eiga svona börn".

Gutti aldrei gegnir þessu,
grettir sig og bara hlær.
Orðinn nærri að einni klessu
undir bíl í gær.

Ofan af háum vegg í dag hann datt.
Drottinn minn og stutta nefið
það var alveg flatt.
Eins og pönnukaka, er það satt?
Ó, já því er ver og miður,
þetta var svo bratt.

Nú er Gutta nefið snúið,
nú má hafa það á tröll,
nú er kvæðið næstum búið,
nú er sagan öll.

Texti: Stefán Jónsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.