HANN TUMI FER Á FÆTUR

Hann Tumi fer á fætur
við fyrsta hanagal
að sitja yfir ánum
lengst inni í Fagradal.

Hann lætur hugann líða
svo langt um dali' og fjöll
því kóngur vill hann verða
í voða stórri höll.

Og Snati hans er hirðfífl
og hrútur ráðgjafinn
og smalahóll er höllin. -
En hvar er drottningin?

Texti: Freysteinn Gunnarsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.