HEIÐLÓUKVÆÐI

Snemma lóan litla í
lofti bláu "dírrindí"
undir sólu syngur:
"Lofið gæzku gjafarans,
grænar eru sveitir lands,
fagur himinhringur.

Ég á bú í berjamó,
börnin smá, í kyrrð og ró,
heima í hreiðri bíða.
Mata ég þau af móðurtryggð,
maðkinn tíni þrátt um byggð
eða flugu fríða".

Lóan heim úr lofti flaug,
ljómaði sól um himinbaug,
blómi grær á grundu,
til að annast unga smá. -
Alla étið hafði þá
hrafn fyrir hálfri stundu!

Texti: Jónas Hallgrímsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.