HERMAÐUR SEM SJALDAN SEFUR
Ungir menn í stríðum falla.
Byssur á eftir dauðanum kalla.
Vígvöllurinn eins og köngulógarvefur,
fyrir hermann sem sjaldan sefur.
Hatrið í huga hermannsins nagar,
eflist og dafnar er líða fleiri dagr.
Byssykjaftur eins og gráðugur refur,
á eftir hermann sem sjaldan sefur.
Hann verður að þrauka er til er þá kraftur.
Hann verður hetja ef komi hann lifandi aftur.
Titrandi raddir í myrkrinu segja:
Við erum "save" á meðan byssurnar þegja.
Skothríðir hljóma úr öllum áttum.
Bara ef leiðtogar þjóðanna næðu nú sáttum.
Ærandi eymdin tökin hefur
á hermanni sem sjaldan sefur.
Skotgrafir fullar af skít og blóði
þar verurnar biðjast fyrir í hljóði.
Að lokum upp þá vonina gefur,
hermaður sem sjaldan sefur.
Hann verður að þrauka er til er þá kraftur.
Hann verður hetja ef komi hann lifandi aftur.
Titrandi raddir í myrkrinu segja:
Við erum "save" á meðan byssurnar þegja.
Flytjandi: Halli Reynis
Lag: Halli Reynis
Texti: Halli Reynis