HJÁ ÞÉR

Þegar kviknar á deginum og í lífinu ljós,
þegar myrkrið hörfar frá mér,
þá er eitthvað sem hrífur mig líkt og útsprungin rós,
þá vil ég vera hjá þér.

Þegar geng ég í sólinni ,mitt um hábjartan dag
litafegurð blasir við mér.
Þegar heimurinn heillar mig líkt og töfrandi lag,
þá vil ég vera hjá þér.

Ég vil bæði lifa og vona,
ég vil brenna upp af ást
ég vil lifa með þér svona,
ég vil gleðjast eða þjást.

Meðan leikur allt í lyndi,
líka þegar illa fer,
meðan lífið heldur áfram,
þá vil ég vera hjá þér.

Meðan skuggarnir stækka og ýta húminu að,
gamall máninn bærir á sér.
Vil ég eiga andartak inni á rólegum stað,
þá vil ég vera hjá þér.

Ég vil bæði lifa og vona,
ég vil brenna upp af ást
ég vil lifa með þér svona,
ég vil gleðjast eða þjást.

Meðan leikur allt í lyndi,
líka þegar illa fer,
meðan lífið heldur áfram,
þá vil ég vera hjá þér.


Meðan leikur allt í lyndi,
líka þegar illa fer,
meðan lífið heldur áfram,
þá vil ég vera hjá þér.


Þegar slokknar á deginum yfirþyrmandi nótt,
stormar fyrir stjarnanna her.
En þá bítur mig ekkert á og ég sef vært og rótt
ef þú vilt vera hjá mér,
þá vil ég vera hjá þér.


Flytjandi: Stefán Hilmarsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.