HÓLMFRÍÐUR JÚLÍUSDÓTTIR

Gullna skó og græna sokka
gafstu mér um árið okkar
Vaglaskóginum í
buxum sumar á vorum vegum
á okkar snærum stúlkur nokkrar
þvottasnúrum stóðu hjá
mér situr hún og stoppar
í sambandi okkar spáir í spilin
Morgunblaðið og mig.

:,:Hólmfríður Júlíusdóttir:,:

Ég sá þig sitja við borðið bláa
með vaxi lita húsið gráa
sem byggðum við Breiðholti á
mér liggur sú kvöð að skilja
hvað öðrum gengur sem eitthvað
skilja verðbréfum víxlum og því.

:,:Hólmfríður Júlíusdóttir:,:

Þó engin hafi árshátíðin
haldin verið haustið eftir þetta
og svo mig nagað hafi kvíðinn
að ég falli kominn var að detta,
þá kom hún að mér askvaðandi
studdi mig með tangarhaldi.

:,:Hólmfríður Júlíusdóttir:,:
Hólmfríður, Hólmfríður ...

Með Vísi-tölum við um að selja
braggann gráa og mublur smáar
í Háaleitið flytja svo
við getum sofið saman
áhyggjulausum rekkjuvoðum
í alsnægtum lifað í sátt.

Flytjandi: Nýdönsk



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.