HOLUR INNAN HAUSINN

Það er holur innan hausinn á mér nú
þar sem heilinn áður var nú ert þú
og þar kemst bara ekkert annað fyrir
allt annað flýgur bara framhjá og yfir.

Þetta virðist vera ómæld fyrirhöfn
ég hef alltaf átt bágt með að muna nöfn
nú er þitt það eina sem mér tekst að muna
allt annað óskiljanleg orðaruna
ég reyni að stafa mig framúr
kemst ekki fram úr því.

Leit þig augum fyrsta sinnið
áður en ég missti minnið
vissi að ég gat hætt að leita
hvað skyldi nú daman heita?
Við spurningunni er aðeins eitt rétt svar
nú birtist það mér alls staðar.

Það er holur innan hausinn á mér nú
þar sem ég var sjálfur áður var nú ert þú
sem hefur hugsun mína á þínu valdi
þetta fór þá alveg eins og ég taldi
það kemst bara einn fyrir
í höfðinu á mér í senn.

Leit þig augum fyrsta sinnið
áður en ég missti minnið
vissi að ég gat hætt að leita
hvað skyldi nú daman heita?
Við spurningunni er aðeins eitt rétt svar
nú birtist það mér alls staðar.

Flytjandi: Nýdönsk



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.