HRÍSEYJAR-MARTA

Hún Hríseyjar-Marta
með hárið sitt svarta
var fræg fyrir kátínu forðum á síld,
og það hressti okkur alla
að heyra hana kalla:
Hæ tunnu, hæ tunnu,
hæ salt, meira salt.

Hún Hríseyjar-Marta
aldrei heyrðist hún kvarta
þó hún fengi ekki hænublund nótt eftir nótt
og það hressti okkur alla
að heyra hana kalla:
Hæ tunnu, hæ tunnu,
hæ salt, meira salt.

Hún Hríseyjar-Marta
með hárið sitt svarta
hún veiktist af hósta eitt haustið og dó,
og það hryggði okkur alla
er hún hætti að kalla:
Hæ tunnu, hæ tunnu,
hæ salt, meira salt.

Hún Hríseyjar-Marta
með hárið sitt svarta
hún gat ekki legið í gröfinni kjur,
og það hressti okkur alla
að heyra hana kalla:
Hæ tunnu, hæ tunnu,
hæ salt, meira salt.

Texti: Jónas Árnason



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.