HVAR SEM EYJAMAÐUR FER

Höldum hátíð í Herjólfsdal
þeim hrífandi fjallsal,
er geymir vor ljúfustu leyndarmál
og lifir fagur í vorri sál.

Myndin sem mest á ber
og meitluð í hjartað er,
sýnir húmið létt læðast um hlíðar og dal,
sig hjúfrar að meyju og hal.

Hvar sem er, hvar sem Eyjamaður fer,
á dalurinn hluta í hjarta hans,
honum hlýnar þegar hann minnist hans.

Hann dreymir um hátíð í Herjólfsdal,
þeim hrífandi fjallasal,
er geymir hans ljúfustu leyndarmál
og lifir fagur í hans sál.


Lag: Sigurjón Ingólfsson
Texti: Snorri Jónsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.