HVE DÁTT ER HÉR Í DALNUM

Hve dátt er hér í Dalnum inni,
er dagur lýkur göngu sinni
og rökkrið hylur rósavanga,
ó, rómantískt er hér að ganga
um götur þær er gekk ég forðum
og gladdi þig með ástarorðum.
þá kveikir Siggi kyndla sína
í kynjabirtu fjöllin skína!

Á bálið vörpum sorg og sút,
syngjum meðan brennur
dönsum villt og drekkum út,
dagur þar til rennur.
Hve dátt er hér í dalnum inni,
er dagur lýkur göngu sinni
og þegar ljómar bálið bjarta,
þá birtir yfir hverju hjarta.

Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Ási í Bæ



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.