Í KJALLARANUM

Í kjallaranum
í kjallaranum
honum Kela aldrei reikningslistin brást.
Í kjallaranum
í kjallaranum
en Keli lærði aldrei neitt um koss og meyjarást.

Það sagt hefur verið í sögum og sungin mörg um það ljóð.
Hvað ástin er ótrygg og hverful þó ungmeyjan sé við þig góð.
En allt er það ekkert að marka sem á því má glögglega sjá.
Að Piltarnir yrkja -oftast um þær sem aldrei líta á þá.

Í kjallaranum
í kjallaranum
honum Kela aldrei reikningslistin brást.
Í kjallaranum
í kjallaranum
en Keli lærði aldrei neitt um koss og meyjarást.

En svo þegar hann var átján ára hann áttaði sig loks á því.
Að konan er karlmanninum yndi það kveikti bál honum í.
Þær stungu hann af ein eftir aðra sem er kannski dálítil von.
Því hann kunni minna -um koss og ást en Kötlu og Jón Gerreksson.

Í kjallaranum
í kjallaranum
honum Kela aldrei reikningslistin brást.
Í kjallaranum
í kjallaranum
en Keli lærði aldrei neitt um koss og meyjarást.

Því kerlingin er kraftaleg og iðin hann Keli má nú vinna eins og þræll.
Og andvaka hann yrkir kvæði hve áður hann var glaður og sæll.
Og svona það sannaðist á Kela sem sagði ég áður hér frá.
Að piltarnir ættu -að yrkja um þær sem aldrei líta á þá.

Í kjallaranum
í kjallaranum
honum Kela aldrei reikningslistin brást.
Í kjallaranum
í kjallaranum
en Keli lærði aldrei neitt um koss og meyjarást.

Texti: Jón Sigurðsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.