JARÐARFARARBRAGUR

Það gerðist hér suður með sjó
að Siggi á Vatnsleysu dó.
:.:Og ekkjan hans Þóra
var ekki að slóra
til útfararveislu sig bjó:.:

Það var logndrífa og ládauður sjór
er hinn látni í gröfina fór.
:.:Og ekkjan með sjarmi
brá svuntu að hvarmi
menn sáu að hryggðin var stór:.:

Klerkur sagði, "Holdið er hey
vér hryggjumst og kveinum ó vei
:.:Þann gæðamann tel ég
er guði nú fel ég
við gleymum hans trúmennsku ei":.:

Þegar gengin frá garði var drótt
kom granninn og talaði hljótt.
:.:"Þó góðan með sanni
þú syrgir nú manninn
má sorginni gleyma í nótt":.:

En Þóra sagði: "Því skal ei leynt
að þetta er fallega meint,
:.:en sorgina ég missti,
er ég kistusmiðinn kyssti
þú kemur því góði of seint":.:


Texti: Sigurður Þórarinsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.