Á DIMMRI NÓTTU

Á dimmri nóttu bárust boð
um bjartan nýjan dag.
Guð sendi engla sína til
að syngja dýrðar lag.
Hann framtíð jarðar börnum býr
og boðar fögnuð þeim,
því kærleikur sem kuldinn flýr
nú kom í þennan heim.

Að heyra boðin himni frá
fær heimi þínum breytt.
Þau boð að heilög himinsdýr
sé hjarta þínu veitt.
Guð lætur ekkert aftra sér
og auðgar barnið sitt.
Hann gefur jóla gleði þér
Og guðsríkið er þitt.

Guðs engill flytur enn þá boð
með undur skærri raust
Um sálarfrið, um frelsi til
að fagna ótta laust.
Á jólahátíð heilög kyrrð
fær hugann leyst úr þröng
því heimurinn á hljóða stund
og heyrir engla söng.



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.