HANN ER FÆDDUR FRELSARINN

Hann er fæddur frelsarinn.
Nú fagnar óbó og flautan skæra.
Hann er fæddur frelsarinn,
fögnum við þeirri gleðigjöf.

Eins og vindur um veröld fór
vonin er þú heim í fæddist.
Eins og vindur um veröld fór
vísar stjarnan á hirðakór.

Hann er fæddur...........

Lágt í stalli liggur hann,
liggur þar í reifum vafinn.
Lágt í stalli liggur hann
lýsir stjarnan á sérhvern mann.

Hann er fæddur........

Ásýnd hans er heið og hrein,
hjarta mitt af gleði syngur.
Ásýnd hans er heið og hrein,
hjartað lofar hinn unga svein.

Hann er fæddur...........

Jesús, meistari, mæti son,
mannsins bur og göfgi herra.
Jesús, meistari, mæti son,
minning þín er heimsins von.

Hann er fæddur...........

Texti: Gunnlaugur V. Snævarr



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.