JÓLIN KOMA

Er nálgast jólin lifnar yfir öllum
það er svo margt sem þarf að gera þá
og jólasveinar fara upp á fjöllum
að ferðbúast og koma sér á stjá.

Jólin koma, jólin koma,
og þeir kafa snjó á fullri fart,
jólin koma, jólin koma,
allir búast í sitt besta skart.

Hann er svo blankur auminginn hann pabbi
að ekki gat hann gefið mömmu kjól.
Svo andvarpaði' hann út af búðarlabbi:
"Það er svo dýrt að halda þessi jól".

Jólin koma, jólin koma,
blessuð krakkar forðist glaum og gól.
Jólin koma, jólin koma,
eignist kyrrð og frið um heilög jól.




Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.