KLUKKNAHREIM

Klukknahreim, klukknahreim
hljóma' um fjöll og fell,
klukknahreim, klukknahreim
ber á bláskinssvell.
Stjarnan mín, stjarnan þín
stafar geislum hjarn.
Gaman er að geta' um jól
glaðst sem lítið barn.

Þótt ei sjái sól
sveipar jarðarból
hug og hjarta manns
heilög birta' um jól.
Mjöllin heið og hrein
hylur laut og stein.
Á labbi má þá löngum sjá
lítinn jólasvein.

Klukknahreim, klukknahreim
hljóma' um fjöll og fell,
klukknahreim, klukknahreim
ber á bláskinssvell.
Stjarnan mín, stjarnan þín
stafar geislum hjarn.
Gaman er að geta' um jól
glaðst sem lítið barn.

Komið, komið með
kringum jólatréð.
Aldrei hef ég eins
augnaljóma séð.
Björn fær hlaupahjól,
Halla nýjan kjól.
Sigga brúðu sína við
syngur "Heims um ból".

Klukknahreim, klukknahreim
hljóma' um fjöll og fell,
klukknahreim, klukknahreim
ber á bláskinssvell.
Stjarnan mín, stjarnan þín
stafar geislum hjarn.
Gaman er að geta' um jól
glaðst sem lítið barn.




Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.