Ó, HVE DÝRÐLEG ER AÐ SJÁ

Ó, hve dýrðleg er að sjá
alstirnd himins festing blá,
þar sem ljósin gullnu glitra,
glöðu leika brosi' og titra
:/: og oss benda upp til sín. :/:

Nóttin helga hálfnuð var,
huldust nærfellt stjörnurnar,
þá frá himinboga' að bragði
birti' af stjörnu,' um jörðu lagði
ljómann hennar sem af sól. :/:

Þegar stjarna' á himni hátt
hauður lýsir miðja' um nátt,
sögðu fornar sagnir víða;
sá mun fæðast meðal lýða
:/: konungur sem æðstur er. :/:

Vitringar úr austurátt
ei því dvöldu' en fóru brátt
þess hins komna kóngs að leita,
kóngi lotning þeim að veita
:/: mestur sem að alinn er. :/:

Stjarnan skær þeim lýsti leið,
leiðin þannig varð þeim greið,
uns þeir sveininn fundu fríða.
Fátæk móðir vafði´hinn blíða
:/: helgri' í sælu' að hjarta sér. :/:

Texti: Stefán Thorarensen



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.