KOMDU Í KVÖLD


Komdu í kvöld
út í kofann til mín,
þegar sólin er sest
og máninn skín.

Komdu hér ein,
því að kvöldið er hljótt,
og blómin öll sofa
sætt og rótt.

Við skulum vera hér heima
og vaka og dreyma.
Vefur nóttin örmum hlíð og dal.

Komdu í kvöld
út í kofann til mín,
þegar sólin er sest
og máninn skín.

Texti: Jón Sigurðsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.