KOMDU INN Í KOFANN MINN

Komdu inn í kofann minn er kvölda og skyggja fer
þig skal aldrei iðra þess að eyða nótt hjá mér.
Við ævintýraeldana er ýmislegt að sjá,
og glaður skal ég gefa þér allt gullið sem ég á.

Tíu dúka tyrkneska og töfraspegla þrjá
níu skip frá Norvegi og naut frá Spáníá.
Austurlenskan aldingarð og íslensk höfuðból
átta gráa gæðinga og gylltan burðarstól.

Fjaðrasveiflu fannhvíta og franskan silkikjól
eyrnahringi ennisspöng og alabastursskrín.
Hundrað föt úr fílabeini full með þrúguvín
og lampa þann sem logaði og lýsti Alladín.

Komdu inn í kofann minn er kvölda og skyggja fer
alltaf brennur eldurinn í arninum hjá mér.
Ég gleymdi einni gjöfinni og gettu hver hún er
ég gleymdi einni gjöfinni ég gleymdi sjálfum mér


Texti: Davíð Stefánsson



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.