KRUMMI SVAF Í KLETTAGJÁ

AmKrummi svaf í klettagjá,
kaldri vetrarnóttu á
verður margt að meini, Emverður margt að Ammeini,
Amfyrr en dagur fagur rann
freðið nefið dregur hann
undan stórum steini, Emundan stórum Amsteini.

AmAllt er frosið úti gor,
ekkert fæst við ströndu mor,
svengd er metti mína, Emsvengd er metti Ammína,
Amef að húsum heim ég fer
heimafrakkur bannar mér
seppi’ úr sorpi’ að tína, Emseppi’ úr sorpi’ að Amtína.

AmÖll er þakin ísi jörð,
ekki séð á holtabörð
fleygir fuglar geta, Emfleygir fuglar Amgeta,
Amen þó leiti út um mó,
auða hvergi lítur tó;
hvað á hrafn að éta, Emhvað á hrafn að Améta?

AmÁ sér krummi ýfði stél,
einnig brýndi gogginn vel,
flaug úr fjallagjótum, Emflaug úr fjallaAmgjótum,
Amlítur yfir byggð og bú,
á bæjum fyrr en vakna hjú,
veifar vængjum skjótum, Emveifar vængjum Amskjótum.

AmSálaður á síðu lá
sauður feitur garði hjá,
fyrrum frár á velli, Emfyrrum frár á Amvelli,
Am „Krúnk, krúnk! nafnar, komið hér!
krúnk, krúnk! því oss búin er
krás á köldu svelli, Emkrás á köldu Amsvelli.“

Lag:         Þjóðlag
Texti:       Jón Thoroddsen


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.