KVEÐJUSTUND

Ó vertu sæll ég kveð þig kæri vinur
klökk af þrá ég bið þig gleymdu mér.
Vertu sæll við sjáumst aldrei aldrei, aldrei á ný
því ást mín er horfin með þér.

Ég aldrei framar elska mun neinn annan
eilífð þrá í huga mínum er.
Ó vertu sæll um eilífð elsku vinur
og ást mín er horfin með þér.

Þegar sól er sest á bak við fjöllin
sérhvert kvöld þá hugsa ég til þín.
Minningin hún lifir þó að annað hverfi mér allt
það eina er huggunin mín.

Kveðju mína kvöldsólin þér færi
kossinn minn í geislum hennar er.
Ó vertu sæll um eilífð elsku vinur
og ást mín er horfin með þér.

Flytjandi: 14 Fóstbræður



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.