KVÖLD Í MOSKVU
Eitt sinn einn ég gekk yfir Rauðatorg
og mér fylgdi undarleg sorg.
Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá.
Það var maíkvöld í Moskvuborg.
Seinna sat ég einn grænum garði í,
fuglar sungu dirrindídí.
Ég var ungur þá, haldin ungri þrá.
Það var maíkvöld í Moskvubí.
Allt í einu ég unga stúlku sá,
sem þar stóð og horfði mig á.
Bak við rósarunn með sinn rósamunn.
Það var maíkvöld í Moskvu þá.