KVÖLDIÐ ER OKKAR

Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg.
Við skulum tjalda í grænum berjamó.
Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær:
Lindin þar niðar og birkihríslan grær.

Leikur í ljósum
lokkum og angandi rósum.
Leikur í ljósum
lokkum hinn fagnandi blær.

Daggperlur glitra, um dalinn færist ró.
Draumar þess rætast, sem gistir Vaglaskóg.
Kveldrauðu skini á krækilyngið slær.
Kyrrðin er friðandi mild og angurvær.

Leikur í ljósum
lokkum og angandi rósum.
Leikur í ljósum
lokkum hinn þagnandi blær.

Lag: Jónas Jónasson
Texti: Kristján frá Djúpalæk



Sendiš mér gjarnan póst ef žiš finniš villur ķ textunum
en takiš gjarnan fram viš hvaša texta er įtt.