LÍFIÐ ER LOTTERÍ

Um Dfrægðarmenn og kappa við Bmfáum oft að heyra,
en Gfáa veit ég líka honum DSiglufjarðar-Geira.
Að erfiðleikum sínum hann Bmalltaf gaman henti,
og Gef að hann í sérstöku Dklammaríi lenti,
sagði´ hann:

     A“Lífið er lotterí
     DJá, það er lotterí.
     GJá, það er lotterí.
     Og Dég tek Aþátt í Dþví.”

Í æsku hans á böllum voru áflog fastur liður,
og allra manna fyrstur var hann jafnan sleginn niður.
En þegar hann svo stóð upp aftur eftir meðferð slíka
með augu bólkin, sprungna vör og nefið brotið líka,
sagði´ hann:

“Lífið er lotterí……..

Hann ungur gerðist formaður á mótorbátnum Brandí,
og bein úr sjó hann aldrei dró, en lenti oft í strandi.
En Geira stóð á sama, hann öxlum sínum yppti,
og er hann bátnum strandaði í tuttugasta skipti,
sagði´hann:

“Lífið er lotterí……….

Hann eitt sinn fékk sér konu; af öðrum konum bar hún,
en ekki nema í meðallagi dyggðug kona var hún.
Hún elskaði hann talsvert, en aðra menn talsvert meira,
og er hún lokum skildi við manninn sinn hann Geira,
sagði´hann:

“Lífið er lotterí……….

En dag einn sýndist karlinn eitthvað lumbrulegur vera,
og læknarnir þeir tóku hann og fóru strax að skera.
Og er þeir höfðu burt úr honum skorið fleira og fleira,
svo fækkað hafði stórlega innyflum í Geira,
Sagði´hann:

“Lífið er lotterí…………

Og kvöld eitt fékk hann aðkenning af alvarlegu slagi.
Og inan stundar fékk hann slag af miklu verra tæi.
Og þegar nóttin lagðist yfir haf og yfir hauður,
og heiðurskarlinn Geiri virtist loksins alveg dauður,
sagði´hann:

     A“Lífið er lotterí
     DJá, það er lotterí.
     GJá, það er lotterí.
     Og Dég tek Aþátt í Dþví.”
     Sagði´hann:
     A“Lífið er lotterí
     DJá, það er lotterí.
     GJá, það er lotterí.
     Og Dég tek Aþátt í Dþví.”

Sendu gjarnan línu ef þú veist um höfund lags
Texti:       Jónas Árnason


Sendið mér gjarnan póst ef þið finnið villur í textunum
en takið gjarnan fram við hvaða texta er átt.